Brjálaður fögnuður City í leikslok (myndskeið)

Gleðin leyndi sér ekki hjá leikmönnum, þjálfurum og stuðningsmönnum Manchester City eftir að liðið tryggði sér Englandsmeistaratitilinn í fótbolta með 3:2-sigri á Aston Villa á heimavelli í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag.

Matty Cash og Philippe Coutinho komu Villa í 2:0 en City svaraði með tveimur mörkum frá İlkay Gündoğan og einu frá Rodri á fimm mínútna kafla skömmu fyrir leikslok.

Fögnuð Manchester City má sjá í spilaranum hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert