Mörkin: Þrjú mörk Liverpool dugðu ekki til

Sadio Mané, Mo Salah og Andy Robertson skoruðu mörk Liverpool í 3:1-heimasigri á Wolves í loka umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag eftir að Pedro Neto hafði komið Wolves yfir snemma leiks.

Sigurinn nægði Liverpool ekki til að verða enskur meistari þar sem Manchester City vann endurkomusigur á Aston Villa.

Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert