Portúgalska stórstjarnan Cristiano Ronaldo er á förum frá enska knattspyrnufélaginu Manchester United samkvæmt ítalska miðlinum La Repubblica.
Í frétt miðilsins kemur fram að Erik Ten Hag, nýráðinn stjóri Manchester United, hafi ekki stórt hlutverk í huga fyrir Ronaldo á komandi leiktíð og er honum því frjálst að yfirgefa félagið.
Enski miðilinn Daily Star greinir frá að líklegasti næsti áfangastaður sé Roma á Ítalíu. Þar myndi Ronaldo spila undir stjórn José Mourinho á ný.