Liverpool samþykkir tilboð í sóknarmann

Takumi Minamino er á förum til Mónakó.
Takumi Minamino er á förum til Mónakó. AFP

Enska knattspyrnufélagið Liverpool hefur samþykkt kauptilboð franska félagsins Mónakó í japanska sóknarmanninn Takumi Minamino.

Tilboðið hljóðar upp á 15 milljónir evra auk þriggja milljóna í árangurstengdar greiðslur.

Minamino er þegar búinn að samþykkja kaup og kjör hjá Mónakó en á eftir að gangast undir læknisskoðun.

Japaninn var keyptur til Liverpool frá Red Bull Salzburg á 7,25 milljónir punda í janúar 2020 en náði aldrei að vinna sér inn fast sæti í byrjunarliði þeirra rauðklæddu.

Hann skoraði 14 mörk í 55 leikjum í öllum keppnum fyrir Liverpool. Minamino vann ensku úrvalsdeildina með liðinu á sínu fyrsta hálfa tímabili og ensku bikarkeppnina og enska deildabikarinn á síðasta tímabili.

Í báðum bikarkeppnum varð hann markahæsti leikmaður Liverpool en fékk þó ekki að spila mínútu í hvorugum úrslitaleiknum, sem voru báðir gegn Chelsea og unnust báðir í vítaspyrnukeppni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert