Enska knattspyrnufélagið Tottenham Hotspur hefur samþykkt tilboð Hollandsmeistara Ajax í hollenska landsliðsmanninn Steven Bergwijn.
Ajax mun samkvæmt enskum fjölmiðlum greina 30 milljón evrur fyrir þennan 24 ára gamla kantmann sem hefur skorað sex mörk í 22 landsleikjum fyrir Holland. Hann á eftir að gangast undir læknisskoðun áður en kaupin verða endanlega staðfest.
Tottenham keypti hann af PSV Eindhoven fyrir 26 milljónir punda árið 2020 en Bergwijn hefur aldrei fest sig almennilega í sessi hjá Lundúnaliðinu. Hann á þó að baki 60 leiki með því í úrvalsdeildinni og hefur skorað sjö mörk.