Skilur ekki söluna á Sterling

Sergio Agüero skilur ekki söluna á Raheem Sterling.
Sergio Agüero skilur ekki söluna á Raheem Sterling. AFP

Fyrrum knattspyrnumaðurinn Sergio Agüero hefur gagnrýnt fyrrum félag sitt Manchester City fyrir söluna á fyrrum liðsfélaga sínum Raheem Sterling til Chelsea. 

Enski sóknartengiliðurinn var seldur til Chelsea á 47,5 milljónir punda í sumar eftir sjö ára veru og fjórar Englandsmeistaratitla hjá Manchester-félaginu. Agüero furðar sig á þessari ákvörðun City. 

„Ég skil ekki söluna á Sterling. Það koma tímar sem fyrrum félag mitt tekur undarlegar ákvarðanir,“ sagði Agüero á Twitch-síðu sinni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert