Brentford kom til baka og náði í stig gegn Leicester

Leikmenn Brentford fagna marki Ivan Toney í leik á síðasta …
Leikmenn Brentford fagna marki Ivan Toney í leik á síðasta tímabili. AFP/Ben Stansall

Leicester og Brentford skildu jöfn, 2:2, á King Power-vellinum í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í dag.

Timothy Castagne kom Leicester yfir í fyrri hálfleik áður en Kiernan Dewsbury-Hall tvöfaldaði forystuna á upphafsmínútu síðari hálfleiks.

Ivan Toney minnkaði muninn fyrir Brentford þegar um hálftími var eftir og það var svo Joshua Dasilva sem jafnaði metin þegar fjórar mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma. 

Liðin eru því bæði með eitt stig að einum leik loknum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert