Selfyssingurinn lagði upp sigurmarkið

Jón Daði Böðvarsson lagði upp sigurmarkið.
Jón Daði Böðvarsson lagði upp sigurmarkið. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Bolton hafði betur gegn Morecambe, 1:0, á heimavelli í ensku C-deildinni í fótbolta í kvöld.

Jón Daði Böðvarsson var í byrjunarliði Bolton og hann lagði upp sigurmarkið á Conor Bradley á 39. mínútu.

Leikurinn var sá fyrsti sem Jón Daði byrjar í deildinni á leiktíðinni, en fjórar umferðir eru búnar í C-deildinni. Bolton er í fjórða sæti með átta stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert