Æfði ekki og vill til Manchester

Erik ten Hag vill fá Anthony til Manchester United.
Erik ten Hag vill fá Anthony til Manchester United. AFP/Ian Kington

Brasilíski knattspyrnumaðurinn Anthony æfði ekki með Ajax í dag, degi eftir að hollenska félagði hafnaði 80 milljón evra tilboði frá Manchester United í leikmanninn.

Erik ten Hag, knattspyrnustjóri United, vann með Anthony hjá Ajax og vill ólmur fá Brasilíumanninn með sér til Englands. Ajax hefur hins vegar lítinn áhuga á að selja sóknarmanninn.

Anthony gæti farið í einhvers konar verkfall hjá Ajax til að þrýsta félagaskiptunum í gegn. Hollenska félagið gæti leitað til Hakim Ziyech hjá Chelsea til að leysa Anthony af hólmi, verði hann seldur til Manchester.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert