Franski knattspyrnumaðurinn Tanguy Ndombele hefur verið lánaður frá Tottenham á Englandi til Napólí á Ítalíu en bæði lið leika í efstu deild í sínum löndum.
Tottenham greiddi Lyon 63 milljónir punda fyrir leikmanninn á sínum tíma og er hann sá dýrasti í sögu enska félagsins. Ndombele náði hinsvegar ekki að festa sig í sessi hjá Lundúnaliðinu.
Hann lék alls 91 leik fyrir Tottenham og skoraði í þeim tíu mörk, en var lánaður til Lyon seinni hluta síðustu leiktíðar. Þar skoraði hann eitt mark í fimmtán leikjum.