West Ham vann 2:0 sigur gegn Wolves í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.
Ítalinn Gianluca Scamacca kom West Ham á bragðið með fínu skoti rétt fyrir utan teig eftir tæpan hálftíma leik.
Jarod Bowen bætti svo við öðru marki West Ham á 54. mínútu og þar við sat.
West Ham fer upp úr fallsæti með sigrinum en liðið er með sjö stig eftir átta leiki. Wolves færist hins vegar nær botninum og er liðið nú í 18. sæti með sex stig.
Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.