Margrét Lára um Chelsea: Best að gleyma þessum leik sem fyrst

Í Vell­in­um á Sím­an­um Sport í gær ræddu þau Gylfi Ein­ars­son, Mar­grét Lára Viðars­dótt­ir og Tóm­as Þór Þórðar­son um Chelsea og skellinn sem Graham Potter og hans menn fengu gegn Brighton, fyrrum félögum enska knattspyrnustjórans.

Margrét Lára sagði að mistök Chelsea í leiknum gegn Brighton séu ekki mistök sem við erum vön að sjá frá liðinu.

„Ég held að það sé kannski bara best fyrir þá að gleyma þessum leik sem fyrst. Þeir voru bara einhvern veginn einbeitingarlausir og ná ekki að vinda ofan af því að hafa lent 2:0 undir,“ sagði Margrét Lára.

Umræðurn­ar um Chelsea má sjá í heild sinni í spil­ar­an­um hér að ofan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert