Braut veðmálareglu 232 sinnum

Ivan Toney er búinn að koma sér í klandur.
Ivan Toney er búinn að koma sér í klandur. AFP/Oli Scarff

Ivan Toney, framherji Brentford á Englandi, hefur verið kærður af enska knattspyrnusambandinu fyrir að brjóta veðmálareglur þess 232 sinnum á milli 23. janúar 2021 og 24. janúar 2022.

Hann hefur viku til að svara fyrir kæruna. Leikmenn í deildum á vegum sambandsins mega ekki veðja á leiki, eða gefa upplýsingar til annarra í viðmálatilgangi.

Toney gæti átt yfir höfði sér bann og háa sekt fyrir brotin, en hann hefur leikið gríðarlega vel með Brentford á yfirstandandi leiktíð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert