Leeds og West Ham skildu jöfn, 2:2, í fjörugum leik í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Bæði lið komust yfir í leiknum, en skildu að lokum jöfn.
Wilfried Gnonto og Rodrigo gerðu mörk Leeds og Lucas Paquetá og Gianluca Scamacca mörk West Ham.
Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.