Gylfi: Kepa átti 100% að taka þetta

Gylfi Einarsson og Tómas Þór Þórðarson á Símanum sport ræddu 1:0-sigur Manchester City á útivelli gegn Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Riyad Mahrez skoraði sigurmarkið á 63. mínútu eftir sendingu frá Jack Grealish, þremur mínútum eftir að þeir komu saman inn á sem varamenn.

Gylfi segir Kepa Arrizabalaga í marki Chelsea, eiga sök á markinu. Hefði Spánverjinn getað gómað boltann eftir sendingu Grealish, en lét hann einhverra hluta vegna fara á Mahrez sem skoraði af öryggi.

Innslagið má sjá í spilaranum hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert