Mörkin: Glæsileg afgreiðsla Baileys

Leon Bailey skoraði eitt mark og átti stóran þátt í öðru þegar Aston Villa vann Leeds United 2:1 í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

Bailey kom Villa yfir snemma leiks með glæsilegri afgreiðslu eftir laglega skyndisókn.

Hann fór svo illa með varnarmenn Leeds eftir rúmlega klukkutíma leik, þrumaði að marki, Illan Meslier varði en Emiliano Buendía var mættur til að skalla boltann í netið af stuttu færi.

Leeds minnkaði muninn seint í leiknum, það gerði Patrick Bamford með skoti af stuttu færi eftir frábæran undirbúning Willy Gnonto.

Mörkin þrjú má sjá í spilaranum hér að ofan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert