Mörkin: Stórkostlegt sigurmark í botnslagnum

Southampton vann gríðarlega mikilvægan sigur á Everton í botnslagi í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag, 2:1.

Amadou Onana kom Everton yfir með skalla eftir horn en James Ward-Prowse sneri taflinu við með tveimur mörkum. Það seinna var afar glæsilegt, beint úr aukaspyrnu.

Öll helstu tilþrif leiksins má sjá í spilaranum hér að ofan.

Leikur Everton og Southampton var sýndur beint á Síminn Sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert