Mörkin: Ödegaard innsiglaði sigur Arsenal

Arsenal gerði góða ferð á Tottenham Hotspur-leikvanginn og sigraði heimamenn, 2:0, í leik sem einkenndist af einstefnu að marki Tottenham í fyrri hálfleik en jafnræði í þeim síðari í ensku úr­vals­deild­inni í knatt­spyrnu í dag.

Bukayo Saka skapaði fyrra mark Arsenal, sem skráð var sem sjálfsmark markvarðar Tottenham Hugo Lloris, og fyrirliðinn Martin Ødegaard innsiglaði sigur Arsenal. Bæði mörkin komu í fyrri hálfleik.

Öll helstu tilþrif leiks­ins má sjá hér að ofan.

Leik­ur Tottenham og Arsenal var sýnd­ur beint á Sím­anum Sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert