Tilþrifin: Havertz stangaði boltann í netið

Chelsea vann Crystal Palace á heimavelli, 1:0, í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Markverðir liðanna stóðu báðir í ströngu í leiknum en það var Þjóðverjinn Kai Havertz sem skoraði sigurmarkið með föstum skalla í seinni hálfleik.

Öll helstu tilþrif leiksins má sjá í spilaranum hér að ofan.

Leikur Chelsea og Crystal Palace var sýndur beint á Síminn Sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert