United mætir Derby eða Hömrunum

Manchester United fær heimaleik.
Manchester United fær heimaleik. AFP/Oli Scarff

Dregið var í 16-liða úrslit ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu karla fyrir leik Derby og West Ham United í 4. umferðinni í kvöld. Manchester United mætir sigurvegara þess einvígis á Old Trafford.

Níu úrvalsdeildarlið eru eftir í pottinum og fengu flest hagstæðan drátt.

Einu mögulegu úrvalsdeildarslagirnir yrðu á milli Man. United og West Ham, fari svo að Hamrarnir hafi betur gegn C-deildarliðinu, og Fulham og Leeds United, vinni Fulham endurtekinn leik sinn við Sunderland.

Drátturinn í heild sinni:

Southampton – Luton/Grimsby

Leicester City – Blackburn/Birmingham

Stoke City - Brighton

Wrexham/Sheffield United - Tottenham

Fulham/Sunderland - Leeds United

Bristol City - Manchester City

Manchester United – Derby/West Ham

Ipswich/Burnley - Sheffield Wednesday/Fleetwood Town

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert