Jökull lánaður á nýjan leik

Jökull Andrésson er kominn til Stevenage.
Jökull Andrésson er kominn til Stevenage. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Knattspyrnumarkvörðurinn Jökull Andrésson, sem er á mála hjá enska B-deildarliðinu Reading, hefur verið lánaður til Stevenage út þetta tímabil.

Jökull er nýkominn úr einnar viku neyðarláni hjá Exeter City í C-deildinni. Stevenage leikur í D-deildinni en stendur þar mjög vel að vígi í öðru sæti og á góða möguleika á að vinna sig upp um deild. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert