Yfirlýsing frá Manchester City

Manchester City hefur verið kært fyrir meint fjárhagsbrot sem félagið …
Manchester City hefur verið kært fyrir meint fjárhagsbrot sem félagið hafnar alfarið. AFP/Oli Scarff

Enska knattspyrnufélagið Manchester City hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna kæru ensku úrvalsdeildarinnar á hendur félaginu fyrir meint fjárhagsbrot.

Í yfirlýsingunni segir að félagið sé undrandi á fréttum af þessum meintu brotum á reglum deildarinnar, sérstaklega þar sem félagið hafi skilað af sér til deildarinnar miklu magni af upplýsingum.

Félagið segir að kærkomið sé að óháðir aðilar muni skoða málið þar sem á óhlutdrægan hátt sé hægt að meta allar þær sannanir sem fyrir liggi og styðji málstað félagsins. Það sé tilhlökkunarefni að þetta mál verði kveðið niður í eitt skipti fyrir öll.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert