Klopp gerir sömu mistökin aftur og aftur

Jordan Henderson og Fabinho hafa ekki átt fast sæti í …
Jordan Henderson og Fabinho hafa ekki átt fast sæti í liði Liverpool á tímabilinu. AFP

Danny Murphy, fyrrverandi leikmaður enska knattspyrnufélagsins Liverpool, skaut föstum skotum að Jürgen Klopp stjóra liðsins á dögunum.

Liverpool hefur gengið skelfilega á tímabilinu en liðið er sem stendur í tíunda sæti deildarinnar með 29 stig, 11 stigum frá Meistaradeildarsæti.

Murphy lék 249 leiki fyrir Liverpool á árunum 1997 til 2004 en hann starfar í dag sem sparkspekingur hjá breska ríkissjónvarpinu.

Kemur alltaf jafn mikið á óvart

„Liðsuppstilling Liverpool kemur mér alltaf jafn mikið á óvart,“ sagði Murphy í samtali við talkSport þegar hann ræddi gengi Liverpool á tímabilinu.

„Ég horfi ekki á æfingar hjá liðinu en það skiptir ekki máli, Jordan Henderson á að byrja alla leiki liðsins að mínu mati. Hann er hjartað í liðinu og á miðsvæðinu sérstaklega.

Hann er enn þá með fæturna til þess að hlaupa en af einhverjum ástæðum geymir Klopp hann á bekknum. Klopp gerir sömu mistökin aftur og aftur.

Ég veit að Fabinho er ekki að eiga gott tímabil en hann og Henderson eru leikmenn sem hafa verið í heimsklassa undanfarin tímabil. Þeir þurfa að fá spiltíma til að komast upp úr lægðinni sem þeir eru í,“ sagði Murphy.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert