Mörkin: Markaleikur í Leeds

Leeds og Brighton gerðu jafntefli, 2:2, í ensku úrvalsdeild karla á Elland Road í dag. 

Alexis Mac Allister kom Brighton yfir á 33. mínútu en Patrick Bamford jafnaði metin fyrir Leeds sjö mínútum síðar. 

Brighton komst svo aftur yfir á 61. mínútu er Jack Harrison varð fyrir óláni að setja boltann í eigið net. Harrison svaraði þó fyrir það og jafnaði metin á 78. mínútu, 2:2, sem voru lokatölur. 

Mörkin má sjá  í spil­ar­an­um hér að ofan en mbl.is fær­ir ykk­ur efni úr enska bolt­an­um í sam­vinnu við Sím­ann sport. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert