Ætla ekki að áfrýja rauða spjaldi Casemiros

Casemiro er á leið í fjögurra leikja bann.
Casemiro er á leið í fjögurra leikja bann. AFP/Lindsey Parnaby

Forráðamenn enska knattspyrnufélagsins Manchester United ætla ekki að áfrýja rauða spjaldinu sem miðjumaðurinn Casemiro fékk í leik liðsins gegn Southampton um nýliðna helgi.

Leiknum lauk með markalausu jafntefli í Manchester en Casemiro fékk að líta gula spjaldið, áður en VAR-myndbandsdómgæslan greip í taumana og dómari leiksins Anthony Taylor ákvað að breyta spjaldinu úr gulu í rautt.

Þetta er í annað sinn á tímabilinu sem miðjumaðurinn fær að líta rauða spjaldið en þetta þýðir að hann er á leið í fjögurra leikja bann.

Hann missir því af leiknum gegn Fulham í 8-liða úrslitum ensku bikarkeppninnar, sem og leikjum gegn Newcastle, Brentford og Everton í ensku úrvalsdeildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert