Brighton og Brentford á Evrópusiglingu

Alexis Mac Allister hjá Brighton hefur betur í baráttu við …
Alexis Mac Allister hjá Brighton hefur betur í baráttu við Albert Sambi Lokonga hjá Crystal Palace í leik liðanna í kvöld. AFP/Adrian Dennis

Brighton og Brentford halda sínu striki í baráttunni um að ná Evrópusæti í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu og bæði lið unnu mikilvæga sigra í kvöld.

Brighton fékk Crystal Palace í heimsókn og sigraði 1:0. Solly March skoraði sigurmarkið á 15. mínútu.

Brentford sótti Southampton heim á suðurströndina og sigraði 2:0. Ivan Toney var enn á skotskónum en hann skoraði fyrra markið á 32. mínútu. Yoane Vissa innsiglaði sigurinn með marki á áttundu mínútu í uppbótartíma.

Ivan Toney skoraði enn og aftur fyrir Brentford í kvöld.
Ivan Toney skoraði enn og aftur fyrir Brentford í kvöld. AFP/Adrian Dennis

Brighton er með 42 stig í sjöunda sætinu, náði Liverpool að stigum og á leik til góða á Jürgen Klopp og hans menn sem sitja í sjötta sætinu.

Brentford fór upp fyrir Fulham og í áttunda sætið með 41 stig.

Crystal Palace er áfram í 12. sæti með 27 stig en er samt aðeins þremur stigum fyrir ofan fallsæti og er að dragast inn í fallbaráttuna. Southampton situr áfram á botninum með 22 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert