Ákvörðunin tekin í kvöld

Ákvörðun um framtíð Conte verður tekin í kvöld.
Ákvörðun um framtíð Conte verður tekin í kvöld. AFP/Justin Tallis

Ákvörðun Tottenham um framtíð ítalska knattspyrnustjórans Antonio Conte verður tekin í kvöld. 

Conte hef­ur farið mik­inn á blaðamanna­fund­um und­an­farið þar sem hann hef­ur gagn­rýnt fé­lagið og hafa marg­ir talað um að hann sé hrein­lega að reyna að láta reka sig.

Aftur á móti hafa heimildarmenn nálægt Conte fullyrt að hann hafi ekki tjáð sig á laugardaginn vegna þess að hann vill að Tottenham reki sig. Þess í stað endurspegluðu ummæli hans það sem hann hefur fundið fyrir í langan tíma og hann ætlaði ekki að ráðast á leikmenn eða stjórn.

Í breskum miðlum kemur fram að erfitt sé að sjá leið fyrir Ítalann til að halda áfram, en lokaákvörðunin verður tekin í kvöld. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert