Conte yfirgefur Tottenham

Antonio Conte er ei lengur knattspyrnustjóri Tottenham.
Antonio Conte er ei lengur knattspyrnustjóri Tottenham. AFP/Justin Tallis

Tottenham og ítalski knattspyrnustjórinn Antonio Conte hafa komist að samkomulagi um starfslok Ítalans hjá enska knattspyrnufélaginu.

Frá þessu greinir Tottenham í yfirlýsingu á heimasíðu sinni. 

Þessar fregnir lágu í loftinu en Conte fór mikinn á blaðamannfundi síðustu helgi eftir leik Tottenham og Southampton í ensku úrvalsdeildinni sem lauk með 3:3-jafntefli. 

Þar gagnrýndi hann félagið og leikmenn liðsins og töldu margir að endalok hans sem stjóri liðsins væru óumflýjanleg, sem er nú staðreynd. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert