Aston Villa upp fyrir Chelsea

Ollie Watkins kemur Aston Villa á bragðið í dag og …
Ollie Watkins kemur Aston Villa á bragðið í dag og fagnar að hætti hússins. AFP/Justin Tallis

Aston Villa vann góðan útisigur á Chelsea, 2:0, í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Ollie Watkins skoraði fyrra mark gestanna á 18. mínútu og John McGinn það síðara í upphafi seinni hálfleiks.

Með sigrinum fór Aston Villa upp fyrir Chelsea og situr í 9. sæti með 41 stig. Chelsea er í því 11, með 38 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert