Varalið City vann Chelsea

Argentínumaðurinn Julian Alvarez fagnar sigurmarkinu í dag.
Argentínumaðurinn Julian Alvarez fagnar sigurmarkinu í dag. AFP/Oli Scarff

Manchester City tók á móti Chelsea í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Leikurinn fór fram á heimavelli Manchester City og heimamenn stilltu upp varaliði sínu en vann engu að síður slakt Chelsea lið, 1:0.

Eftir leikinn er City á toppi deildarinnar með 88 stig en Chelsea er í 12. sæti með 43 stig.

Manchester City varð enskur meistari í gær eftir að Arsenal tapaði fyrir Nottingham Forest og það sást á uppstillingu Pep Guardiola að titillinn væri í höfn. Hann gerði níu breytingar á liðinu frá sigurleiknum gegn Real Madrid í vikunni, aðeins Kyle Walker og Manuel Akanji héldu sæti sínu í liðinu.

Eina mark leiksins skoraði Argentínumaðurinn Julian Alvarez á 12. mínútu þegar hann skoraði með góðu skoti eftir flottan undirbúning hjá ungstirninu Cole Palmer.

Alvarez kom boltanum svo aftur í netið í síðari hálfleik en Ryad Mahrez hafði tekið boltann með hendinni fyrr í sókninni og dæmdi VAR markið af.

Eftir leik var mikil sigurhátíð og fór bikarinn á loft við mikinn fögnuð viðstaddra.

Man. City 1:0 Chelsea opna loka
90. mín. Mykhaylo Mudryk (Chelsea) á skot framhjá Kemst í góða stöðu vinstra megin í teignum og lætur vaða en skotið er lélegt og fer langt framhjá.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert