Arsenal vill íslenska landsliðsfyrirliðann

Glódís Perla Viggósdóttir í baráttunni í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.
Glódís Perla Viggósdóttir í baráttunni í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. AFP/Justin Tallis

Glódís Perla Viggósdóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu, er á óskalista enska úrvalsdeildarfélagsins Arsenal. 

Þetta herma heimildir mbl.is og Morgunblaðsins en rætt var um möguleg félagaskipti Glódísar til Englands í Fyrsta sætinu, íþróttahlaðvarpi mbl.is og Morgunblaðsins, í gær.

Glódís Perla, sem er 27 ára gömul, gekk til liðs við Bayern München í Þýskalandi frá Rosengård í Svíþjóð sumarið 2021.

Hún hefur verið lykilmaður í liði Bæjara á leiktíðinni en liðið er með tveggja stiga forskot á Wolfsburg á toppi þýsku 1. deildarinnar þegar ein umferð er eftir af tímabilinu.

Arsenal í viðræðum við Bayern

Glódís Perla var frábær fyrir Bayern í viðureign liðsins gegn Arsenal í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar þar sem Arsenal hafði betur, 2:1.

Forráðamenn Arsenal eiga nú í viðræðum við þýska félagið um kaup á íslenska miðverðinum en samingur hennar í Þýskalandi rennur út næsta sumar.

Arsenal er sem stendur í 3. sæti ensku úrvalsdeildarinnar og getur ekki endað ofar þegar ein umferð er eftir af tímabilinu en liðið er eitt það best mannaða í heiminum í dag.

Mikil meiðsli hafa herjað á liðið í allan vetur og eru ensku landsliðskonurnar Leah Williamson og Beath Mead báðar frá vegna krossbandsslita, sem og hollenska landsliðskonan Vivianne Miedema.

Hægt er að hlusta á umræðuna í heild sinni í spil­ar­an­um hér fyr­ir ofan en þátt­ur­inn er aðgengi­leg­ur á öll­um helstu hlaðvarps­veit­um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert