Fyrirliðinn hneig niður á Wembley

Tom Lockyer fær aðhlynningu í dag.
Tom Lockyer fær aðhlynningu í dag. AFP/Adrian Dennis

Tom Lockyer, fyrirliði enska knattspyrnuliðsins Luton Town, hneig niður í úrslitaleik umspils um sæti í ensku úrvalsdeildinni á Wembley í dag, þar sem Luton mætir Coventry. 

Atvikið átti sér stað strax á tíundu mínútu og fékk Lockyer aðhlynningu, áður en hann fór af velli og beint á nærliggjandi sjúkrahús.

Lockyer er nú með meðvitund, en þarf að ganga undir frekari rannsóknir á sjúkrahúsinu.

Þegar fréttin er skrifuð er Luton með 1:0-forystu og á góðri leið með að tryggja sér sæti í ensku úrvalsdeildinni.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert