England: Fimm leikir sýndir beint á mbl.is

Leikur Brentford og Manchester City er sýndur beint á mbl.is …
Leikur Brentford og Manchester City er sýndur beint á mbl.is sem og leikur Arsenal og Wolves. AFP/Oli Scarff

Fimm leikir í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu sem allir hefjast klukkan 15:30 eru sýndir beint hér á mbl.is. 

Útsendingin hefst klukkan 15:00 með upphitun á Síminn Sport og eru leikirnir fimm sýndir á sérvefnum Enski boltinn hér á mbl.is. Flautað er til leiks klukkan 15:30.

Leikirnir fimm eru eftirtaldir:

1. Arsenal – Wolves
2. Aston Villa – Brighton
3. Brentford – Manchester City
4. Chelsea – Newcastle
5. Crystal Palace – Nottingham Forest 

Smelltu hér til þess að horfa á leikina fimm í beinni útsendingu á mbl.is.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert