Neymar vill bara fara til United

Neymar gæti verið á leið í enska boltann.
Neymar gæti verið á leið í enska boltann. AFP

Brasilíski knattspyrnumaðurinn Neymar vill bara ganga til liðs við enska úrvalsdeildarfélagið Manchester Uniteed.

Það er Foot Mercato sem greinir frá þessu en Neymar, sem er 31 árs, gamall, er samningsbundinn París SG í Frakklandi.

Hann hefur verið orðaður við brottför frá félaginu en í frétt Foot Mercato kemur meðal annars fram að Neymar muni bara yfirgefa frönsku höfuðborgina fyrir Manchester United.

Félagaskipti Neymars til United velta hins vegar líka á því hvort Sjeikinn Jassim bin Hamad Al-Thani kaupi félagið eða ekki.

Neym­ar er samn­ings­bund­inn Par­ís SG til sum­ars­ins 2025 en alls á hann að baki 173 leiki fyr­ir fé­lagið þar sem hann hef­ur skorað 118 mörk og lagt upp önn­ur 77.

United þyrfti að borga í kring­um 70 millj­ón­ir punda fyr­ir bras­il­íska sókn­ar­mann­inn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert