Leikur Manchester City og Nottingham í 6. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu sem fram fer á Etihad-vellinum í Manchester verður sýndur beint hér á mbl.is í dag en hann hefst klukkan 14.
Útsendingin hefst klukkan 13:30 með upphitun á Síminn Sport og er leikurinn sýndur á sérvefnum Enski boltinn hér á mbl.is. Flautað er til leiks klukkan 14.
Manchester City er í efsta sæti deildarinnar með 15 stig eða fullt hús stiga en Nottingham Forest er með 7 stig í áttunda sætinu.