Sex leikja bann fyrir ljóta tæklingu

Jean-Phillipe Mateta liggur eftir tæklinguna hættulegu.
Jean-Phillipe Mateta liggur eftir tæklinguna hættulegu. AFP/Glyn Kirk

Liam Roberts, markvörður enska knattspyrnuliðsins Millwall, hefur verið úrskurðaður í sex leikja bann fyrir hættulega tæklingu sína á Jean-Philippe Mateta, sóknarmann Crystal Palace, í leik liðanna í ensku bikarkeppninni um síðustu helgi.

Roberts fékk rautt spjald fyrir að sparka í höfuð Mateta, sem lá eftir með djúpan skurð við eyra og þurfti súrefni er hann hlaut aðhlynningu.

Hann var svo fluttur á sjúkrahús þar sem saumuð voru 25 spor. Roberts átti að fara sjálfkrafa í þriggja leikja bann en enska knattspyrnusambandið lagði til að þyngja refsinguna þar sem þrír leikir væru ekki nóg í þessu tilfelli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert