Átti leikmaður Everton að fá beint rautt?

Diogo Jota var hetja Liverpool er liðið sigraði granna sína í Everton, 1:0, í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Portúgalinn skoraði sigurmarkið á 57. mínútu.

Stuðningsmenn Liverpool fögnuðu í leikslok en þeir voru allt annað en sáttir á 11. mínútu þegar James Tarkowski varnarmaður Everton slapp með gult spjald er hann fór illa í Alexis Mac Allister.

Markið, gula spjaldið og önnur atvik úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert