Moyes: Munum njóta þess að keyra Salah á flugvöllinn

Mohamed Salah.
Mohamed Salah. AFP/Glyn Kirk

David Moyes, knattspyrnustjóri Everton, sló á létta strengi er hann var spurður út í Mohamed Salah, sóknarmann nágrannana og erkifjendanna í Liverpool, á fréttamannafundi í gær.

Samningur Salah rennur út í sumar og því útlit fyrir að átta ára dvöl egypska markahróksins sé senn á enda.

„Hann hefur átt ótrúlegt tímabil hjá Liverpool. Svo allrar sanngirni sé gætt erum við að tala um einn besta leikmann sinnar kynslóðar í úrvalsdeildinni. Og það er ekki bara á þessu tímabili. Hann hefur verið svo stöðugur í gegnum flest tímabilin.

Hann hefur skorað fjölda marka, lagt upp fjölda marka, virðist spila hvern einasta leik og glímir sárasjaldan við meiðsli. Hann hefur verið frábær leikmaður fyrir Liverpool. Við munum njóta þess að keyra hann á flugvöllinn og koma honum út í flugvél, koma honum burt,“ sagði Moyes glettinn.

Liverpool og Everton mætast á Anfield í ensku úrvalsdeildinni klukkan 19 í kvöld.

David Moyes.
David Moyes. AFP/Justin Tallis
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert