Gætu verið með Arsenal

Mikel Arteta sagði frá þessu.
Mikel Arteta sagði frá þessu. AFP/Glyn Kirk

Varnarmennirnir Ben White og Jurriën Timber gætu spilað fyrir Arsenal gegn Everton í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta á Goodison Park á morgun. 

Þetta staðfesti Mikel Arteta stjóri liðsins á blaðamannafundi í dag. 

White hefur verið að koma til baka eftir löng meiðsli en missti af sigri Arsenal á Fulham, 2:1, síðastliðinn þriðjudag. 

Í þeim leik meiddist miðvörðurinn Gabriel og verður frá út tímabilið en einnig fór Timber af velli vegna meiðsla. 

Hins vegar gætu White og Timber verið með á morgun en Arteta viðurkenndi að hann gæti þurft að hvíla þá vegna leiksins gegn Real Madrid í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar næsta þriðjudagskvöld. 

Ben White.
Ben White. AFP/Glyn Kirk
Jurriën Timber.
Jurriën Timber. AFP/John Thys
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert