Þrjú rauð spjöld og þrjú mörk (myndskeið)

Níu leikmenn Crystal Palace héldu út gegn tíu leikmönnum Brighton í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu.

Leikurinn endaði 2:1 fyrir Palace en þrjú rauð spjöld fóru á loft síðustu tuttugu mínútur leiksins.

Varamaðurinn Edward Nketiah, leikmaður Palace, fékk tvö gul spjöld á tíu mínútum og var rekinn af velli.

Marc Guehi, miðvörður Palace, var rekinn út af á 90. mínútu og Jan Paul van Hecke, miðvörður Brighton, í uppbótartíma en báðir fengu tvö gul spjöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka