„Það var óreiða varnarlega,“ sagði Eiður Smári Guðjohnsen um frammistöðu Liverpool í 3:2-tapi fyrir Fulham í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu karla í Vellinum á Símanum Sport í gær.
Liverpool komst í 0:1 áður en Fulham sneri taflinu við á 14 mínútna kafla þar sem vörn Liverpool leit ekki vel út.
„Það voru ákvarðanatökur sem voru alls ekki góðar. Svo á Andy Robertson greyið einhverja lélegustu þrennu sem við höfum séð af skrýtnum mistökum,“ bætti Eiður Smári við.
Umræðuna má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.