Tjáði sig um viðræðurnar við Liverpool

Virgil van Dijk, fyrirliði Liverpool.
Virgil van Dijk, fyrirliði Liverpool. AFP/Henry Nicholls

Virgil van Dijk, fyrirliði Liverpool, segir að viðræðum um nýjan samning miði áfram en vill að öðru leyti ekki gefa mikið upp.

Samningur van Dijks rennur út í sumar og hafa viðræður um nýjan samning engan ávöxt borið til þessa.

Þeim miðar áfram já. Ég veit það ekki, við sjáum hvað gerist. Þetta eru viðræður innan félagsins og við sjáum hvað setur.

Ég elska félagið, ég elska stuðningsmennina og þeir voru aftur til staðar fyrir okkur. Við vildum launa þeim það.

En ég vil að þeir verði aftur til staðar fyrir okkur á sunnudag og geri heimavöllinn að mögnuðum vettvangi eins og alltaf fyrir okkur, sagði van Dijk við fréttamenn eftir 3:2-tap fyrir Fulham í ensku úrvalsdeildinni í gær.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert