Knattspyrnumaðurinn fyrrverandi Yossi Benayoun, sem lék með West Ham, Liverpool, Chelsea, Arsenal og QPR á Englandi, lenti í óskemmtilegri lífsreynslu í vikunni.
Vaknaði Benayoun við að handsprengja sprakk fyrir utan heimilið hans í Tel Avív í heimalandinu Ísrael. Engan sakaði en skemmdir urðu á heimili leikmannsins fyrrverandi.
Sást til manns á mótorhjóli kasta sprengjunni, áður en hann flúði vettvang. Enginn hefur verið handtekinn vegna málsins.
Ekki er talið að um hryðjuverk sé að ræða, heldur einhvers konar uppgjör í undirheimum borgarinnar sem Benayoun tengist ekki.