Brasilíumaðurinn Alisson, markvörður enska knattspyrnuliðsins Liverpool, er klár í slaginn fyrir leik liðsins gegn West Ham á Anfield næsta sunnudag.
Frá þessu sagði stjórinn Arne Slot á blaðamannafundi í dag.
Alisson hefur verið frá í meira en hálfan mánuð eftir að hann lenti í árekstri við Davinson Sánchez, varnarmann Kólumbía, í landsleik með Brasilíu.
Þetta eru fleiri góðar fréttir fyrir Liverpool-liðið en fyrr í dag var tilkynnt að Mohamed Salah skrifaði undir nýjan samning. Þá er samkomulag við fyrirliðann Virgil van Dijk gott sem komið í höfn samkvæmt enskum miðlum.