Argentínski heimsmeistarinn Alexis Mac Allister, miðjumaður enska knattspyrnufélagsins Liverpool, hefur engan áhuga á að fara frá félaginu.
Þetta staðfesti faðir hans Carlos í samtali við miðilinn winwin.
Mac Allister hefur verið orðaður við Real Madrid en samkvæmt Daily Mirror myndi hann ekki semja við spænska stórveldið þó það myndi bjóða í hann.
„Ég hef ekkert að segja um þetta mál. Alexis er mjög ánægður hjá Liverpool og hann vonast til að verða Englandsmeistari.
Það skiptir miklu máli að virða félagið sem hann spilar fyrir, þannig ég hef ekkert um þetta að segja,“ sagði faðirinn.