Markaveisla í Newcastle (myndskeið)

Newcastle fór illa með Crystal Palace og vann leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld með fimm mörkum gegn engu.

Jacob Murphy, Harvey Barnes, Fabian Schar og Alexander Isak skoruðu allir fyrir Newcastle og Marc Guehi gerði sjálfsmark sömuleiðis.

Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert