Fyrirliðinn áfram hjá Liverpool

Virgil van Dijk verður áfram í Liverpool-borg.
Virgil van Dijk verður áfram í Liverpool-borg. AFP/Paul Ellis

Fyrirliðinn Virgil van Dijk hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við enska knattspyrnufélagið Liverpool. 

Þetta tilkynnti félagið rétt í þessu. 

Van Dijk hefur verið frábær síðan hann gekk í raðir félagsins frá Southampton í janúar 2018. Hann á að baki 314 leiki, 27 mörk og fullt af bikurum.  

Mohamed Salah lykilmaður liðsins skrifaði einnig nýverið undir nýjan samning og er Liverpool-liðið því búið að tryggja sér þjónustu þeirra tveggja næstu tvö árin. 

Liverpool þarf aðeins að vinna sér inn sex stig til viðbótar í jafnmörgum leikjum til að verða Englandsmeistari. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert