Enska B-deildarliðið Burnley er skrefi nær því að tryggja sér sæti í úrvalsdeildinni að ári eftir 2:1-útisigur á Watford í dag. Burnley er með 91 stig í efsta sæti deildarinnar, með þriggja stiga forskot á Leeds, sem þó á leik til góða.
Watford er eftir leikinn í 12. sæti deildarinnar með 56 stig, 10 stigum frá umspilssæti.
Watford skoraði fyrsta mark leiksins á 8. mínútu með skalla frá Mamadou Doumbia. Zian Flemming jafnaði fyrir Burnley á markamínútunni, þeirri 43. og Josh Brownhill skoraði sigurmarkið á 58. mínútu.
Tveimur leikmönnum Watford var vikið af velli í seinni hálfleik, þeim Moussa Sissoko og Edo Kayembe en báðir fengu þeir tvær áminningar með stuttu millibili.