Enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea vildi tryggja sér þjónustu hollenska varnarmannsins Virgils Van Dijk í sumar.
Daily Mail segir frá því að Chelsea hafi sýnt áhuga á leikmanninum áður en hann skrifaði undir framlegingu á samningi sínum hjá Liverpool í gær.
Nýr samningur Van Dijks við Liverpool rennur út árið 2027.
Van Dijk var einnig orðaður við stórlið París SG. en Hollendingurinn sást á tali við yfirmann knattspyrnumála Parísarliðsins, Luis Campos, eftir leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu á Anfield á dögunum.