Leeds tveimur sigrum frá úrvalsdeildinni

Manor Solomon fagnar sigurmarkinu.
Manor Solomon fagnar sigurmarkinu. Ljósmynd/Leeds United

Leeds er tveimur sigrum frá því að tryggja sér sæti í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta á næstu leiktíð eftir útisigur á Oxford, 1:0, í 43. umferð B-deildarinnar í kvöld.

Ísraelski landsliðsmaðurinn Manor Solomon skoraði sigurmark Leeds á 33. mínútu eftir undirbúning hjá Jayden Bogle.

Leeds er í toppsæti deildarinnar með 91 stig, eins og Burnley í öðru sæti. Sheffield United er í þriðja sæti með 86 stig.

Eru níu stig eftir í pottinum og tvö efstu liðin fara beint upp á meðan liðin í 3.-6. sæti fara í umspil.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert